Nokkuð vantaði af leikmönnum í bæði lið en það var ljóst að breiddin er meiri í Selfossliðinu. Eftir jafna byrjun þá slitu okkar menn sig frá gestunum um miðjan fyrri hálfleikinn. Það varð ljóst í hálfleik að róður ÍR inga myndi verða erfiður þar sem hraði leiksins var gríðarlegur í fyrri hálfleik eins og staðan í hálfleik bar með sér enda 41 mark skorað og fjölmargar aðrar sóknir hjá báðum liðum sem fóru forgörðum. Okkar menn höfðu fengið á sig 23 mörk á móti HK, 22 á móti Víkingi og 21 á móti FH í síðustu 3 útileikjum en að þessu sinni urðu mörkin 33 eða talsvert yfir meðaltali undanfarinna leikja. Þó var markvarslan góð í leiknum og vörðu markmennirnir um 40% skota gestanna.
Í síðari hálfleik hélt munurinn áfram að aukast og varð mestur í leikslok eða 15 mörk. Lokatölur urðu eins og áður hefur komið fram 48-33. Þrátt fyrir alla þessa markasúpu þá fóru 26 forgörðum í leiknum og tapaðir boltar þar fyrir utan voru 7. Þá má því vel skjóta á það að Selfoss hafi náð um 75-80 sóknum í leiknum. Það var því ljóst að hvíldin í vikunni hafði mikið að segja fyrir 2. flokk að þessu sinni en mfl. spilaði ekki í þessari viku þar sem liðið sat hjá.
Liðið á nú einn leik eftir og vinnist sá leikur mun liðið enda í 2 sæti deildarinnar annað árið í röð. Það er ljóst að Aklureyri verður deildarmeistari annað árið í röð þar sem það verður að teljast ólíklegt að þeir tapi 2 af þeim 3 leikjum sem þeir eiga eftir.
Markaskor og önnur tölfræði:
Árni Steinn 9 mörk og 3 stoðs.
Raggi 8 mörk og 10 stoðs.
Eyþór 8 mörk og 2 stoðs.
Sjóli 7 mörk og 13 stoðs.
Sveinbjörn 6 mörk og 2 stoðs.
Matti 3 mörk og 1 stoðs.
Trausti 3 mörk
Sissi 2 mörk
Kúldi 2 mörk og 1 stoðs.
Sverrir varði 11 skot í fyrri hálfleik
Ástgeir varði 10/1 í seinni hálfleik
