Andri Már Sveinsson einn af okkar efnilegu leikmönnum fór í aðgerð á hné vegna krossbandsslits nú í vikunni og ver aðgerðin vel heppnuð að sögn. Andri hefur því ekki verið alveg aðgerðarlaus þessa vikuna. Vonandi nær Andri sér sem fyrst en svona meiðsli geta tekið um það bil hálft ár að ná sér af.
Síðuritari er þess þó fullviss að Andri komi sterkari til baka og að áhorfendur eigi eftir að sjá hvítu þrumuna geysast upp völlinn í hraðaupphlaupum í tonnavís.
