Það var ljóst strax í byrjun leiks að okkar menn ætluðu að kvitta fyrir slysið í Austurbergi í byrjun febrúar. Eftir aðeins 15 mín. var leikurinn búinn. Staðan var þá orðin 10-4 og leikmenn ÍR aldrei líklegir til þess að finna lausn á góðri vörn heimamanna. Þá gekk sóknarleikur Selfoss vel framan af fyrri hálfleik þrátt fyrir að ÍR hafi klippt Atla Kristins út frá byrjun. Hins vegar varð sóknarleikur liðsins mjög óagaður og kærulaus í lok fyrri hálfleiks þegar munurinn var orðinn 14-8 en það kom ekki að sök þar sem varnarleikurinn var frábær. Því var staðn í hálfleik 17-10.
Í síðari hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt þar til staðan var orðin 26-15 og tæpar 15 mín. til leiksloka. Þá kom aftur kafli sem einkenndist af kæruleysi og agaleysi í sókninni og í ofan á það þá gáfu menn aðeins eftir í vörn líka. Engu að síður var munurinn það mikill á liðunum í gær að öruggur og sanngjarn 9 marka sigur vannst 30-21. Allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig og komumst alls 10 leikmenn á markalistann að þessu sinni.
Sebastian getur samt ekki verið ánægður með kaflana í lok hvors hálfleiks og hlýtur að taka það fyrir á næstu æfingum því þótt skotnýtingin hafi verið fín þá var liðið með alls 17 tapaða bolta í sókninni sem er allt of mikið. Eins og leikurinn spilaðist í gær hefði sigurinn átt að vera talsvert stærri en sigur er það sem skiptir mestu máli og nú hefur liðið klárað 3 leiki af 6 í þriðju umferð og undirbúningur fyrir þann næsta hafinn.
Markaskor Selfoss:
Ragnar Jóhannsson 8
Ívar Grétarsson 4
Árni Steinn Steinþórsson 4
Atli Kristinsson 3
Guðni Ingvarsson 3
Hörður Másson 3
Helgi Héðinsson 2
Hörður Bjarnarson 1
Ársæll Ársælsson 1
Eyþór Lárusson 1
Birkir Bragason varði 16/1 skot og fékk á sig 15 mörk (52%).
Sebastian Alexandersson varði 5 og fékk á sig 6 (45%).
Næstu tveir leikir eru á útivelli gegn ÍBV 27. mars og Þrótti 30. mars.
Síðasti heimaleikur liðsins er svo gegn Aftureldingu þann 7. apríl.
Við vonumst auðvitað til þess að þá muni liðið tryggja sér sæti í efstu deild á næsta tímabili þannig að Selfyssingar og aðrir Sunnlendingar eru beðnir um að taka það kvöld frá vegna leiksins.
Áfram Selfoss
