Bæði liðin í 4. flokki karla léku seinasta leik sinn í deild í dag. B-liðið mætti Fjölni og vann þar sinn annan leik í vetur. Lokatölur urðu 19-15 sigur í ansi furðulegum leik. A-liðið mætti Aftureldingu en tapaði eftir hörkuleik 28-23. Báðir leikir voru á útivelli.
B-liðið var mjög lengi í gang og voru alls ekki líkir sjálfum sér framan af. Þeir voru hryllilegir sóknarlega fyrstu 20 mínútur leiksins og gerðu hver mistökin á fætur öðrum. Staðan var þá 8-5 fyrir Fjölni en Selfoss skorar þá fjögur mörk gegn engu í lokin á hálfleiknum.
Í síðari hálfleik voru okkar menn að pirra sig framan af hálfleik og Fjölnir því skammt undan. Heimamenn meira að segja yfir þegar rúmar 10 mínútur voru eftir. Gefa þá Selfyssingar í. Þeir fóru að klára vörnina og munaði mikið um það. Selfoss vann 15-19 sigur.
Miklu munaði um stórleik Sölva í markinu en hann var yfirburðarmaður og sá eini sem hélt haus allan tímann. Þórður var öflugur lengst af. Aðrir komu með fína spretti en heilt yfir voru nær allir undir pari. Varnarleikurinn var ekki nægilega góður lengst af og vantaði aðeins uppá. Sóknin batnaðiseinustu 30 mínútur leiksins en nokkuð vantaði þó upp á.
Selfoss endar í 7. sæti deildarinnar en gríðarlega stígandi hefur verið í leik liðsins eftir áramót. Liðið spilar við KA2 í umspili um að komast í úrslitakeppni B-liða. Sá leikur mun fara fram rétt eftir páska.
A-liðið mætti Aftureldingu í leik sem réði því hvort þeir enduðu í 2. eða 5. sæti deildarinnar. Deildin hefur verið einstaklega jöfn og spennandi í vetur og einugnis þrjú stig sem muna á fyrsta og fimmta liði. Selfoss byrjaði leikinn vel og stjórnaði fyrri hálfleiknum fyrstu 15 mínúturnar. Í stöðunni 7-8 fyrir okkar menn breytist leikurinn hins vegar. Afturelding nær undirtökunum og kemst 13-10 yfir. Þeir leiða 14-11 í hálfleik.
Í síðari hálfleik byrjar Selfoss illa og lendir 6 mörkum undir. Þeir koma hins vegar til baka, endurskipuleggja sig og minnka muninn í tvö mörk. Í stöðunni 22-19 fyrir Aftureldingu var Selfoss svo manni fleiri. Strákarnir tapa hins vegar þeim kafla 2-0 og var möguleikinn þá úti og lokatölur urðu svo 28-23.
Einstaklega fúl niðurstaða þar sem Selfyssingar gáfu sig alla í leikinn
og ætluðu sér sigur. Fátt sem ekkert féll með þeim í leiknum. Nær öll fráköst
voru heimamanna og ef Selfyssingar voru við það að stela boltanum þá mistókst
það í flestum tilfellum og heimamenn fengu boltann eða færi í staðinn. Svo dæmi
séu tekin.
Selfyssingar hefðu hæglega getað unnið þennan leik. Liðið er betra meiri hlutann af fyrri hálfleik og yfir framan af. Nokkrum sinnum gátu þeir komist tveimur mörkum yfir og skapað sér smá forskot en klúðruðu því. Selfoss glataði 5 boltum í fyrri hálfleik og brenndi af 4 dauðafærum. Samt voru þeir yfir meiri hluta fyrri hálfleiks. Ef allt hefði verið eðlilegt hefði staðan verið minnst jöfn í hálfleik. Þeir lentu útaf þessu í erfiðri stöðu í seinni hálfleik og þurftu að elta allan tímann.
Liðið fékk möguleika manni fleiri en sá kafli fór illa og reyndist dýrkeypur. Þá var liðið með einungis 50% skotnýtingu sem er það slakasta eftir áramót.
Möguleikinn var til staðar en þetta féll ekki með liðinu að þessu sinni. Selfoss var nokkuð frá sínu besta á nokkrum sviðum en samt í hörkuleik á einum erfiðasta heimavelli landsins. Okkar menn mæta svo Fram í úrslitakeppninni en Selfyssingar enda að öll líkindum í 5. sæti deildarinnar. Í úrslitakeppni getur allt gerst. Liðið lagði sig fram í dag en það dugði ekki til að þessu sinni. Þeir fóru illa með fjölda góðra möguleika í dag og ef þeir laga það getur allt gerst í úrslitakeppninni. Aðeins meiri klókindi en sama hugarfar gæti komið liðinu ansi langt.
