Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

22.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val/Ţrótti í 2 flokki

Liðið vann alla heimaleikina sína sannfærandi fyrir utan einn. Þeir misstu unnin leik niður í jafntefli einmitt gegn Akureyri og það er sá leikur sem sker úr um titilinn að þessu sinni. Sigur í þeim leik hefði þýtt að Selfoss væri orðinn Deildarmeistari. Það þýðir hins vegar lítið að tala um hvað og ef.

Í leiknum í gær spilaði liðið glymrandi sóknarleik eins og svo oft áður enda hefur Selfoss skorað lang flest mörk í deildinni eða 455 í 14 leikjum (um 33 í leik) og enda mótið með 90 mörk í plús. Hins vegar náðu þeir að spila góða vörn líka og er langt síðan hvoru tveggja hefur náðst í einum og sama leiknum. Um leið þá var markvarslan mjög góð og því var ekki hægt annað en að sigra leikinn. Liðið fékk alls á sig 365 mörk í vetur sem gerir 26 að meðaltali og er yfir því meðaltali sem stefnt var að. Varnarleikurinn hefði því mátt vera betri á köflum í vetur. 

Ragnar og Eyþór spiluðu lítið þar sem þeir meiddust báðir í leiknum og vonandi að það muni ekki vara lengi. Að þessu sinni skipti það engu máli og það kom bara maður í manns stað. Matthías spilaði sinn besta leik í vetur og vonandi að það haldi áfram og á hinum kantinum skiluðu Sjóli og Árni Steinn góðum leik.

Markaskorarar:

Matti  7

Sjóli  5

Einar  4

Árni Steinn  4

Sæli  3

Eyþór  3

Kúldi  2

Raggi  1

Ástgeir varði 20 skot og fékk á sig 13 (61%)

Sverrir varði 7/1 og fékk á sig 7 (50%)

 

 

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Ragnarsmótið 2010:

HK - FH 35 : 32 
Haukar - Fram 31 : 24
HK - Selfoss 30 : 31
Haukar  - Valur 23 : 17
Selfoss - FH 26 : 25
Fram -  Valur 25 : 29
1.-2. sæti:          
Selfoss - Haukar 34 : 32
3.-4. sæti:       :  
HK - Fram 38 : 34
5.-6. sæti:          
FH - Valur 24 : 23

Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta