Stelpurnar í 5. flokki eldra ár sigruðu í efstu deild 4. umferðar Íslandsmótsins sem fram fór á Selfossi um helgina. Selfoss-stelpurnar unnu alla sína leiki sannfærandi og eru klárlega með besta lið landsins þessa dagana í sínum aldursflokki. Helgina áður höfðu stöllur þeirra á yngra árinu einnig unnið efstu deildina í sínum aldursflokki. Frábær árangur hjá þessum sigursælum stelpum. Systurnar Inga Fríða og Guðfinna Tryggvadætur eru þjálfarar beggja liðanna og hafa gert frábæra hluti með þessar stelpur í vetur.
Eins og áður sagði fór mótið fram á Selfossi í íþróttahúsum Vallaskóla og FSu. Leiknir voru 50 leikir og áætlað að um 300 manns hafi heimsótt Selfoss í tengslum við mótið. Allt mótshald gekk vel, yngriflokkaráð handknattleiksdeildar vill koma á framfæru þökkum til allra þeirra sjálfboðaliða sem störfuðu við mótið.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af mótinu.
