Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.3.2010 | Handboltaakademía

Örn međ slitiđ krossband

Örn Þrastarson okkar efnilegi miðjumaður meiddist illa í leik gegn UMFA fyrir stuttu. Nú er komið í ljós að um slitið krossband er að ræða sem og fótbrot. Örn er afar harður af sér og var greinilegt er hann lá þjáður á vellinum að eitthvað væri að fyrst hann kveinkaði sér. Hann fer í aðgerð í maí og vonandi verður hann klár sem fyrst næsta tímabil.

Þessi efnilegi leikmaður hefur leikið gríðarleg vel í vetur og hefur bætt sig mikið og ekki síst líkamlega. Skemmtilegur leikmaður sem og drengur. Síðuritari er fullviss um að Örn kemur enn sterkari til baka og verður alltaf fyrstur í vörn, sér í lagi ef hann skorar sjálfur.

Örn er fjórði leikmaður Selfoss sem slítur krossband á innan við tveimur árum.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta