Selfoss í 3.flokki (92-liðið) tapaði í gær fyrir Valsmönnum. Leikurin fór fram í Reykjavík og endaði 32-27 og leiddu heimamenn 16-14 í hálfleik. Okkar menn byrjuðu mun betur og komust í 4-1 og höfðu yfir 11-10 en þá komu Valsmenn með fimm mörk í röð. Selfyssingar náðu mest að minnka muninn í tvö mörk en komust ekki nær. Slæmt tap því síðuritari telur að Selfoss eigi að vinna Val að öllu jöfnu. Þetta tap þýðir að möguleikar liðsins á sæti í úrslitakeppni eru orðnir nokkuð litlir.
Sóknin gekk illa í leiknum. Einar var sem fyrr tekinn úr umferð en það hafa menn leyst vel hingað til. Það var þó ekki þannig í gær. Menn gerðu ekki eins og þeir hafa gert í leikjunum á undan og því fór sem fór.
Strákarnir eiga leik eftir gegn Stjörnunni og vinni þeir hann þá eiga þeir möguleika á umspilssæti gegn HK. Möguleiki á úrslitakeppni er því enn til staðar.
