Hann hafði þetta um leikinn að segja:
"Við verðum bara að kyngja því að þeir voru betri en við í dag. Þeir spiluðu mjög agaðan, skynsaman og vel útfærðan sóknarleik og frábæra vörn, á meðan að sóknarleikur okkar var alveg hið gagnstæða. Við náðum aldrei að stilla upp í þær leikaðferðir sem lagt var upp með fyrir leik. Aðalskytturnar okkar Atli og Raggi náðu sér aldrei á strik og voru mikið að brjóta sig út úr leikskipulaginu. Fyrir vikið urðu sóknirnar allt of stuttar. Þá var það gríðarleg blóðtaka fyrir okkur að missa Ívar í upphituninni. Hann var akkúrat það sem okkur vantaði í dag í sóknina. Þá var okkar aðal vörn mjög slök í dag, en eftir að við breyttum um vörn þá gekk okkur miklu mun betur að stoppa þá í sókninni. Markvarslan var mjög góð hjá okkur og Birkir með 21 skot varið, en því miður þá hjálpaði það ekki neitt í dag. Vörn og markvarsla verða bæði að vera í lagi í svona leik."
Nú skilst mér að það hafi gengið á ýmsu í leiknum í dag. Voru menn að fara á taugum:
"Andrúmsloftið og stemningin í dag var stórkostleg. Þetta upplifirðu hvergi á Íslandi í dag nema í Eyjum. Það eru einmitt svona leikir sem maður vill helst spila. Þetta er það sem maður man eftir einhver ár. Við undirbjuggum okkur mjög vel fyrir leikinn m.t.t. þess að þeir myndu vera í einhverjum kyndingum og það gekk bara þokkalega að útiloka það. Því miður þá féllu miður falleg ummæli frá leikmönnum í garð hvors annars en þó aðallega frá varamannabekknum þeirra og ef eftirlitsdómari hefði verið þarna þá hefði kannski ekki komið til þess. En við áttum svo sem okkar skot líka sem ekki voru við hæfi, en svona er þetta bara í hita leiksins. Mér fannst þó dómararnir standa upp úr inni á vellinum. Þeir stóðu sig frábærlega við mjög erfiðar aðstæður. Þeir misstu aldrei tökin á leiknum þrátt fyrir ótrúlegar uppákomur sem óreyndara par hefði misst öll tök á."
Hvað meinarðu með uppákomum ?
"Það þjónar engum tilgangi að fara eitthvað nánar út í það. Næstum því allir sem koma að þessu ÍBV liði eru sannkallaðir heiðursmenn og ég óska þeim öllum alls hins besta, en því miður leynast stundum síðri menn í hópi slíkra heiðursmanna. Það er ekkert meira að sem þarf að segja um þennan leik en að þeir unnu hann verðskuldað og við féllum á þessu prófi. Við koksuðum einfaldlega á þessu. Nú er það næsti leikur og ekkert annað kemst að núna. Við höfum verið að einbeita okkur að einu verkefni í einu. Þessu er lokið og það næsta er á þriðjudaginn." Sagði Sebastian að lokum.
