Selfyssingar í 3. flokki A léku síðasta deildarleik sinn sl. laugardag. Stjarnan sótti okkar menn heim og úr varð hörkuleikur. Selfoss leiddi lengi vel og var yfir í hálfleik 17-16. Í síðari hálfleik náðu þeir tveggja marka forustu. Gestirnir reyndust þói sterkari á lokakaflanum og unnu 35-37. Anton og Felix léku best í liði okkar manna, Magnús og Ingvi nýttu sín færi vel. Jóhann Gylfi getur leikið mun betur og sér í lagi Ketill og Einar, en þeir tveir voru fjarri sínu besta.
Mörk: Toni 9, Einar 8, Árni Felix 7, Maggi 3, Ingvi 3, Ketill 3, Bjössi 1, Jói G 1 og Axel varði 5 skot og Bogi 11.
Það er því ljóst að strákarnir enda í 7. sæti deildarinnar og mæta HK í leik um réttinn til að leika við Stjörnuna í 8-liða úrslitum. Selfoss átti í harðri baráttu við Þór og Gróttu um sæti 6, 7 og 8. Fór svo að Þórsarar náðu 6. sætinu, Selfoss 7. og drekkhlaðið Gróttulið af landsliðsmönnum í 8. sæti. En Grótta hefur einmitt fjóra landsliðsmenn innanborðs og þykja því eitt albesta lið deildarinnar.
Síðuritari bíður spenntur eftir leikjum þeim er framundan eru.
