Það var vægast sagt hörmung að sjá liðið í fyrri hálfleik í gær. Það var augljóst að menn voru enn vankaðir eftir rothöggið í Eyjum á laugardaginn. Sebastian var búinn að skipta nánast öllu byrjunarliðinu útaf eftir 10-12 mín. Við það lagaðist ástandið lítillega en Þróttur var yfir allan hálfleikinn og leiddu í hálfleik 16-15. Þrátt fyrir þetta þá hélt þjálfarinn ró sinni. Það var þó ekki laust við að það færi aðeins um alla aðra sem voru þarna að fylgja liðinu.
Það var þó allt annað að sjá til liðsins í síðari hálfleik. Þá spilaði Selfoss liðið loksins eðlilegan leik og þrátt fyrir hetjulega baráttu Þróttara fram eftir síðari hálfleik þá var ljóst að það var aðeins tímaspursmál hvenær þeir myndu gefa eftir. Síðari hálfleikurinn fór 16-7 fyrir okkar menn sem ættu að teljast eðlilegri tölur en 15-16 miðað við stöðu liðanna í deildinni. Sigurinn hefði líklega orðið talsvert stærri ef ekki hefði komið til frábær markvarsla Þórðar í marki Þróttara en Þórður spilaði tvö tímabil með Selfoss á sínum tíma.
Það jákvæða við leik liðsins í síðari hálfleik var að Atli og Raggi vöknuðu af þyrnirósarblundinum sem þeir hafa verið í og mun meiri agi var á sóknarleiknum sem skilaði sér í betri sóknarleik. Varnarleikurinn sem hefur verið týndur uppá síðkastið fannst einnig aftur og almennilegur ákafi var í varnarvinnunni sem skorti svo sárlega í Eyjum á laugardaginn.
Ef eitthvað er hægt að læra af þessum tveimur leikjum þá er ljóst að liðið ætti að vita það núna hvað það þarf að gera til að klára verkefnið næsta miðvikudag. Vonandi taka þeir þann lærdóm með sér í næsta leik.
Markaskor Selfoss:
Ragnar 9
Atli 5
Hörður 5
Guðni 2
Eyþór 2
Hörður (Sjóli) 2
Helgi 2
Sveinbjörn 1
Ársæll 1
Baldur 1
Ómar 1
Birkir varði 1 skot og fékk á sig 11 mörk (8%)
Ástgeir varði 7 skot og fékk á sig 12 mörk (37%)
Heimasíðan hvetur ALLA sem geta til þess að taka frá 7. apríl og mæta á leikinn gegn UMFA þar sem liðið getur með sigri tryggt sér sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.
Gleðilega Páska
