Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

3.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit á öđrum degi Ragnarsmótsins

HK - Selfoss: 30-31 (16-19)
Leikurinn var ofboðslega hraður og eftir aðeins 10 mín. leik var staðan orðin 10-11 fyrir Selfoss. Þegar leið aðeins á fyrri hálfleikinn náðu Selfyssingar undirtökunum og fóru með 3 marka forystu í hálfleikinn. Forystan hefði þó getað verið mun meiri þar sem 2 vítaköst og 4 hraðaupphlaup fóru forgörðum. Í síðari hálfleik minnkaði hraðinn mikið. Selfoss komst þó í vænlega stöðu 20-24 og aftur 21-26 en þá hrökk sóknarleikurinn í baklás og HK náðu að jafna 28-28, 29-29 og 30-30. Selfyssingar voru þó alltaf á undan að skora og komust í 30-31 þegar tæplega mínúta var eftir. HK náði ekki að jafna og niðurstaðan Selfosssigur í skemmtilegasta leik mótsins til þessa. Selfyssingarnir í liði HK, Bjarki Már og "Sjóli" áttu misjafnan dag. Bjarki spilaði vel en "Sjóli" náði sér ekki alveg á strik að þessu sinni. Þá stjórnaði Kristinn liðinu ásamt Erlingi Richardssyni, en báðir þjálfarar HK hafa spilað og/eða starfað með Selfossi á sínum ferli.

Markaskorarar HK:
Ólafur Bjarki Ragnarsson  12
Bjarki Már Elísson  6
Atli Ævar Ingólfsson  5
Vilhelm Gauti Bergsveinsson  3
Sigurjón Björnsson  2
Atli Karl Bachman  2

Markaskorarar Selfoss:
Ragnar Jóhannsson  8
Atli Kristinsson  7
Guðjón Finnur Drengsson  7
Gunnar Ingi Jónsson  3
Helgi Héðinsson  3
Árni Steinn Steinþórsson  2
Einar Héðinsson  1 

Haukar - Valur: 23-17 (9-8)
Seinni leikurinn var mun hægari í gær og miklu betri vörn spiluð en í þeim fyrri, enda hálfleikstölurnar 9-8. Leikurinn var jafn fram í byrjun seinni hálfleiks en þá tóku Haukar hraustlegan kipp og skyldu Valsmenn eftir. Munurinn var 5-7 mörk lengst af en Valsmenn bitu frá sér í lokin og fengu 3 tækifæri til að minnka muninn í stöðunni 20-16 en mistókst. Haukar bættu aftur í og unnu sanngjarnan 6 marka sigur. Selfyssingarnir í liðunum komu allir við sögu að þessu sinni. Hjá Val var Valdimar að sjálfsögðu allt í öllu og Einar Örn byrjaði vel en meiddist síðan. Í Haukaliðinu átti Guðmundur Árni frábærar 15 mín. í síðari hálfleik og Gísli Guðmundsson stjórnaði liðinu ásamt Halldóri Ingólfssyni eins og fyrri daginn.

Markaskorarar Hauka:
Guðmundur Árni Ólafsson  5
Þórður Rafn Guðmundsson  5
Freyr Brynjarsson  3
Sveinn Þorgeirsson  3
Einar Örn Jónsson  2
Tjörvi Þorgeirsson  1
Jónatan Ingi Jónsson  1
Gísli Jón Þórisson  1
Stefán Rafn Sigurmannsson  1
Björgvin Hólmgeirsson  1 

Markaskorarar Vals:
Valdimar Fannar Þórsson  6
Einar Örn Guðmundsson  3
Anton Rúnarsson  2
Orri Freyr Gíslason  1
Gunnar Harðarson  1
Arnar Guðmundsson  1
Jón Björgvin Pétursson  1
Aron Guðmundsson  1
Vaselin Chakmakov  1
 

Þá er það ánægjulegt hversu margir áhorfendur hafa verið á mótinu til þessa en báða dagana hafa verið hátt í 300 manns í húsinu.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta