Bæði Selfossliðin í unglingaflokki karla náðu að tryggja sér sæti í efstu deild Íslandsmótsins. Er þetta í fyrsta skipti sem sama félagið á tvö lið í efstu deild. Fyrirkomulagið var þannig að fyrst var liðunum raðað í fjóra fimm liða riðla eftir árangri síðasta árs. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fóru síðan beint í efstu deild. Selfoss 1 vann alla sína leiki mjög sannfærandi, en Selfoss 2 varð í þriðja sæti í sínum riðli og fór þ.a.l. í fjögurra liða milliriðil þar sem leikið var um tvö síðustu sætin í 1. deild. Leikið var á hlutlausum velli á Seltjarnarnesi. Selfoss 2 vann Aftureldingu og FH 2 nokkuð örugglega en tapaði fyrir ÍR. Með sigrunum tveim var 1. deildarsætið tryggt og því söguleg stund fyrir Selfoss að eiga tvö lið í efstu deild. Allt liðið lék vel um helgina, en einn leikmaður Hörður Másson frá Dalbæ lét sig ekki muna um að leika líka með meistaraflokki og skora 3 mörk. Það verður örugglega hart tekist á þegar Selfoss 1 og Selfoss 2 leika innbyrðis í vetur. Auk Selfossliðanna tveggja eru í 1. deildinni FH, Haukar, HK, KA, Víkingur, Grótta ÍR og Þór.
Allir leikmenn unglingaflokks eru meðlimir í handbolta-akademíu FSu og æfa að jafnaði 10 sinnum í viku. Í vetur verða flestir heimaleikir þeirra leiknir á fimmtudögum. Þar gefst fólki kostur á að sjá þessa stráka en þeir eiga örugglega eftir að koma handboltanum á Selfossi í fremstu röð.
Þess má geta að 4. flokkur karla A-lið tryggði sér öruggt sæti í 1. deild í sínum flokki og B-liðin bæði leika einnig í efstu deild. Selfoss sendir því þrjú lið til keppni í 4. flokki sem er meira en nokkurt annað félag á landinu getur státað af. Hjá stelpunum fer 4. flokkur kvenna til Akureyrar um helgina og leika þær um laust sæti í efstu leild. Ber þetta vott um hið gríðarlega öfluga unglingastarf sem fer fram í handboltanum á Selfossi í dag. Framtíðin er svo sannarlega björt.