Í gærkvöldi spilaði Selfoss 90 við ÍR í 1. deild í unglingaflokki karla. Fyrir leikinn höfðu ÍR-ingar unnið alla 4 leikina sína og flesta þeirra sannfærandi. Leikurinn fór frekar rólega á stað og bar þess merki að um toppslag væri að ræða í deildinni. Nokkuð var um mistök til að byrja með en svo fór leikurinn batnandi. Hraðinn í leiknum var frekar lítill miðað við það sem sést vanalega frá Selfoss 90 en strákarnir eru mjög þreyttir þessa dagana enda búnir að æfa mjög stíft í allt haust í handboltaakademíunni. Selfoss var alltaf skrefinu á undan og leiddi með 1-2 mörkum í fyrri hálfleik. Í hálfleik var staðan 13 - 12 fyrir okkar menn. Seinni hálfleikur byrjaði afleitlega og eftir 15 mín. leik var staðan orðin 19 - 25 fyrir ÍR. Á þessum kafla stóð ekki steinn yfir steini. Vörnin var hriplek og sóknarleikurinn slakur. Þá bætti ekki úr skák að bæði Guðmundur Árni og Örn Davíðs voru utan vallar vegna meiðsla á þessum kafla. Selfyssingar breyttu þá um vörn og Guðmundur Árni harkaði af sér og 5 mín. síðar var staðan orðin 23 - 25 fyrir ÍR og svo 5 mín. fyrir leikslok var Selfoss komið yfir. Leikurinn endaði því 30 - 28 fyrir okkar stráka. Strákarnir sýndu mikla þrautseigju að ná að koma svona til baka eftir að hafa verið í erfiðri stöðu um miðjan seinni hálfleik. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir liðið að ná inn sigrum á meðan þeir eru að vinna sig í gegnum þreytuna og álagið sem fylgir því að æfa svona mikið. Markahæstir í gær voru Bjarki Már með 10 mörk úr 13 skotum, Guðmundur Árni með 8 mörk úr 14 skotum og Einar Héðins með 4 mörk úr 5 skotum. Þá áttu Haraldur og Ragnar ágætan leik í sókn og gáfu hvor um sig 5 stoðsendingar en spiluðu báðir frábæra vörn ásamt Einari Héðins en á milli sín voru þeir með 35 brotin fríköst í leiknum. Þá má ekki gleyma því að Örn Davíðs var kominn með 3 mörk úr 5 skotum, 2 stoðsendingar og 8 brotin fríköst þegar hann meiddist og var hans því sárt saknað báðum megin á vellinum.
Þess má einnig geta að á mánudaginn síðasta spiluði Selfoss 90 á móti Fram í bikarkeppninni á útivelli og unnu 28 - 29 í hörku leik sem var skemmtilegur á að horfa og nóg var af dramatíkinni. Selfoss var undir mestan part leiksins en þeir kláuðu leikinn á lokakaflanum alveg eins og á móti ÍR í gær með miklum karakter og vilja. Fram hafði boltann í síðustu sókninni og voru einum leikmanni fleiri en tókst ekki að skora. Það var fyrst og fremst frábær markvarsla Ástgeirs Sigmarssonar sem skilað þessum sigri í hús. Hann varði alls 27 skot í leiknum, þar af 17 í seinni hálfleik, og fjöldann allan af dauðafærum hvort sem það var úr víti, hraðupphlaupum eða gegnumbrotum.
