Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

24.11.2006 | Handbolti

Styrktaraðilar handbolta-akademíunnar

akad158_undirrit_nov06

Nú í haust var sett af stað handbolta-akademía í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þetta verkefni er framhald af frábærri uppbyggingu barna- og unglingastarfs undanfarinna ára innan handknattleiksdeildar Umf. Selfoss. Iðkendum í þessu verkefni voru settar mjög stífar reglur um neyslu allra vímuefna. Nú þegar hefur árangur strangra reglna skilað sér meðal iðkendanna. Vegna sérstöðu þessa verkefnis og trú foreldra á að gott aðhald og uppbyggilegt íþróttastarf henti þeirra börnum hafa iðkendur komið frá Reykjavík, Egilstöðum og Borgarnesi auk stórs hóps heimamanna. Það er því ljóst að handboltaademían á Selfossi getur lagt þung lóð á vogarskálarnar í forvarnarmálum á Suðurlandi. Iðkendur eru hvattir til að vera til fyrirmyndar innan skólans sem og út á við. Þeir eru flottir og vímulausir. Vonandi hvetur það aðra til að segja nei takk við vímuefnum.

Þrátt fyrir mikinn áhuga og stuðning þá vantar alltaf fjármuni til að láta svona uppbyggingarstarf ganga upp. Það er því ánægjulegt að geta sagt frá því að verkefnið er komið með styrktaraðila sem eru að gefa samfélaginu eitthvað til baka með því leggja sitt af mörkunum til forvarnar- og æskulýðsstarfs á Selfossi. Styrktaraðilar handboltaakademíu FSu og Umf. Selfoss eru: Árborg, BT, SG-Hús, Húsasmiðjan og Eðalhús. Við þökkum þessum styrktaraðilum fyrir að gera okkur kleift að gera handboltaakademíuna að veruleika. 

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta