Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

2.12.2006 | Handbolti

Sigur og Selfoss komið í 5. sæti.

Haukar 2 komu í heimsókn á föstudagskvöldið og leik gegn meistaraflokki Selfoss. Haukar höfðu unnið okkar menn fyrr í haust í vægast skelfilegum leik. Leikurinn var framan af í járnum og höfðu gestirnir yfir í hálfleik 13-15. Okkar menn náðu að jafna 19-19 og þá höfðu þeir brennt af 17 dauðafærum en slæm nýting á þeim færum varð til þess að leikurinn var í járnum. Selfoss skoraði 6 mörk í röð og breytti stöðunni úr 18-19 í 24-19 og lagði þannig grunninn að sigrinum.  Leiknum lauk 33-28 og því má segja að okkar strákar hafi náð fram hefndum frá því í leiknum í haust.

Varnarleikur Selfossliðsins var góður í seinni hálfleik sem og varði Halldór markmaður mjög vel. Liðið lék 6-0 í fyrri hálfleik og gekk sú vörn illa en í þeim síðari var skipt í 3-2-1 og gekk sú vörn mun betur. Baldur Þór Elíasson og Einar Héðinsson léku þar stórt hlutverk ásamt Ragnar Jóhannssyni. Í sókninni er erfitt að taka einhvern einn út en gaman var að sjá hve markaskorunin dreifðist jafnt. Þó má ekki sleppa því að minnast þess að Helgi Héðinsson gerði mikilvæg mörk og Baldur kom með kraft í sóknarleik liðsins og sýndi svo ekki verði um villst að mun meira býr í honum sóknarlega en hann sýnir stundum.

Góður sigur og greinilegt að breidd er í hópnum því í liðið vantaði Atla Kristinsson, Birki Fannar Bragason, Arnar Gunnarsson, Ramunas Mikalonis og Hörð Bjarnarson.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta