Dagana 2. og 3. desember s.l. spiluðu stelpurnar í 4. flokki tvo leiki. 
Fyrri daginn fengu þær KR í heimsókn. Leikurinn fór mjög vel af stað hjá heimamönnum og spiluðu þær mjög góða vörn ásamt því að ná nokkrum hraðaupphlaupum. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Selfoss. Í síðari hálfleik bættu Selfyssingar við sig og spiluðu enn betri vörn og sóknarleikurinn var einnig öflugur. Leikurinn endaði með sex marka sigri Selfoss 25-19. Allir leikmenn liðsins stóðu sig með mikilli prýði og var greinilegt að allir gerðu sitt besta og uppskáru fyrir vikið góðan sigur á heimvelli.
Seinni daginn lá leiðin á Seltjarnarnes þar sem Selfyssingar mættu Gróttu. Kannski voru stelpurnar ennþá að jafna sig á sigrinum frá deginum áður en allavega voru þær engan veginn að sýna jafn góðan leik og á móti KR. Staðan var jöfn eftir 5 mínútur, 2-2 en eftir það seig á ógæfuhliðina hjá Selfossliðinu og má segja að stelpurnar hafi aldrei séð til sólar í leiknum. Í hálfleik var Grótta 7 mörkum yfir og því erfitt að koma inn í seinni hálfleikinn þetta mörgum mörkum undir. En gestirnir spýttu þó aðeins í lófana í byrjun síðari hálfleiks og náðu að minnka muninn í 4 mörk en þá var eins og Grótta tæki aftur öll völd inni á vellinum, náðu mörgum hraðaupphlaupum og eiginlega skutu Selfyssinga í kaf. Leikurinn endaði 23-14, Gróttu í vil. Þó að þessi leikur hafi ekki spilast nógu vel er samt fullt af ljósum punktum í leik Selfossliðsins og margir leikmenn, sem lítið hefur farið fyrir hingað til, að koma mjög sterkir inn. Það er fyrst og fremst vegna þess að þessir einstaklingar eru að mæta mjög vel á æfingar og leggja sig ávallt 100% fram við það sem fyrir er lagt. Eða eins og máltækið segir: Þú uppskerð eins og þú sáir!!!!
Staðan í deildinni þegar þetta er ritað er sú að ÍR er efst með 10 stig, næst kemur Grótta með 8 stig og þar næst koma Selfyssingar með 6 stig og verður þetta að teljast ágætur árangur hjá þessum ungu og efnilegu handboltastelpum.
Nú er hlé á leikjum hjá 4. flokk kvenna, næsti leikur er um miðjan janúar en fram að því á að taka vel á því á æfingum og mæta tvíelfdar til leiks á nýju ári.
Jólakveðja, 4. flokkur kvenna.
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
