Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.12.2006 | Handbolti

2. flokkur kominn í 8-liða úrslit í bikarnum

Í gærkvöldi fór 2. flokkur til Reykjavíkur til að spila gegn Fjölni í bikarkeppninni. Í lið Selfoss vantaði Atla Kristins, Gústa Lill og Baldur vegna meiðsla og veikinda. Í lið Fjölnis vantaði einning tvo sterka leikmenn, línumanninn Andra Jakobson og landsliðsmarkmanninn Hjalta Þorvarðarson.
Fjölnir hefur í gegnum tíðina verið mikið bikarlið og er þetta einungis 2 bikarleikurinn í 4 ár sem þessi aldursflokkur tapar. Þeir hafa í gegnum yngri flokkana tvisvar orðið bikarmeistarar og hitt tapið kom í bikarúrslitum í 3. flokki á móti Fram. Eftir sameingu Fjölnis og Víkings þá hafa þeir ekki tekið þátt undir merkjum Fjölnis fyrr en í gær. Hluti þessara stráka varð bikarmeistari í 2. flokki í fyrra með Víkingi/Fjölni en Víkingur/Fjölnir sendi ekki lið til keppni í 2. flokki í vetur, hvorki á Íslandsmótið né í bikarkeppnina.

Staðan í hálfleik var 9 - 15 fyrir Selfoss. Fyrri hálfleikurinn var spilaður af þeim krafti og hraða sem Selfossliðið er vant að spila á, enda náði liðið góðum tökum á leik sínum og skoraði fjölmörg mörk úr hröðu spili. Seinni hálfleikurinn var hins vegar skelfilega hægur og skynsamir Fjölnismenn náðu hægt og bítandi að draga allan hraða og áhuga úr okkar mönnum sem spiluðu afar illa og voru mjög áhugalausir. Ekkert bar á hraðanum og baráttunni sem liðið hafði sýnt í fyrri hálfleik. Fjölnismenn náðu ekki bara að jafna heldur komast yfir og ná frumkvæðinu í leiknum með mikilli baráttu og leikgleði. Selfyssingar tóku leikhlé og náðu að berja nægan áhuga í sig til þess að snúa leiknum aftur sér í vil og í lok venjulegs leiktíma var jafnt 32 - 32. Þrátt fyrir að löglegt mark hafi verið dæmt af okkar mönnum 10 sek. fyrir leikslok en Fjölnir náði ekki að nýta sér þann tíma heldur til að skora. Framlengingin byrjaði illa og í byrjun seinni hálfleiks hennar komst Fjölnir í 37 - 34.  En með baráttu og miklum vilja náðu okkar menn að skora síðustu 5 mörk leiksins og knýja fram sigur í leik sem hefði aldrei þurft að vera svona erfiður. 

Í liði Fjölnis skoruðu 3 leikmenn 32 af 37 mörkum liðsins. Fremstur í flokki var stórskyttan Sveinn Þorgeirsson sem var gjörsamlega óstöðvandi og skoraði 19 mörk þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð rúmlega hálfan leikinn. Þá skoraði Brynjar Loftson 7 mörk. Þess má geta að þessir tveir eru lykilmenn í meistaraflokki Víking/Fjölnis. Loks skoraði Helgi Magnússon 6 mörk, öll með gegnumbrotum, en þessi efnilegi leikmaður hætti því miður að æfa fyrir tæpum 2 árum en kom í þennan leik.

Í okkar liði voru langbestir Guðmundur Árni með 12 mörk úr 12 skotum og Birkir markmaður sem varði 21 skot og fékk 32 mörk á sig og var því með 40% markvörslu þrátt fyrir að hafa aðeins varið 4 skot í seinni hálfleik. Hann varði hins vegar 3 mikilvæg skot í lok seinni hálfleiks framlengingarinnar einmitt þegar á þurfti að halda og þar af 2 frá stórskyttunni Sveini. Aðrir sem sluppu vel frá þessum leik voru Ragnar með 4 mörk úr 4 skotum, 5 stoðsendingar og 14 brotin fríköst og Einar Héðins með 4 mörk úr 5 skotum og 14 brotin fríköst. Þá átti Almar ágætan leik eftir að hafa verið í smá lægð upp á síðkastið með 5 mörk úr 8 skotum. Loks skoraði Helgi 7 mörk úr 13 skotum, átti 5 stoðsendingar og var með 16 brotin fríköst en átti samt slakan leik því að hann gerði líka mörg mistök. Hann er einfaldlega í þeirri stöðu að það eru gerðar meiri kröfur til hans.
Það er athyglisvert að Selfoss var með alls 72 brotin fríköst, 24 bolta varða og 37 mörk á sig í þessum leik. Það sýnir bara hversu langar sóknir Fjölnir spilaði en þeir enduðu líka langflestar þeirra með marki eftir einbeitingaskort og óþoloinmæði í varnarleik okkar manna. Þá tóku þeir líka mun fleiri fráköst en okkar menn.  

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta