Öll þrjú 4. flokks liðin léku um helgina. A og B2 léku hér á Selfossi á laugardagin, A-liðið gegn FH og B2-liðið gegn Fram. B1-liðið lék í gær við Val í Reykjavík.
A liðið fékk FH í heimsókn og tapaði 26-34, eftir að staðan hafi verið 12-17 í hálfleik. Liðið lék skelfilegan varnarleik, eitthvað sem hefur verið aðall liðsins fram að þessum leik, eins var markvarslan skelfileg. Sóknarleikurinn var þokkalegur og léku þar best Andri Már Sveinsson, Árni Steinn Steinþórsson og Aron Valur Leifsson. Menn eins og Matthías Halldórsson, Andri Hrafn Hallsson og Þór Davíðsson eiga mikið inni. Margir boltar glataðir boltar í hraðaupphlaupum voru liðinu dýrkeyptir en að minnsta kosti fjórum sinnum glataði liðið góðu tækifæri á marki með því að rétta FH-ingum boltann sem skoruðu svo auðveldlega.
A liðið leikur aftur á laugardaginn 16. des. gegn Val og verður liðið að girða sig í brók ef sigur á að nást í þeim leik.
B2 lék einnig á laugardag og vann Fram 25-20 í mjög hröðum leik. Í leikhléi var staðan 14-8 fyrir Selfoss. Í liðið vantaði þrjá sterka leikmenn, en það hafði engin áhrif því menn eins og Anton Traustason, Einar Sverrisson, Ingvi Tryggvason og Magnús Már Magnússon bætti í við sín vanalegu framlög. Þá má ekki gleyma þætti Ármanns Óla Ólafssonar sem skoraði mörg mörk og átti margar stoðsendingar er Framara tóku að leika mjög framarlega á vellinum. Þetta lið á leik hér heima á laugardaginn gegn UMFA.
B1 liðið gerði góða ferð til Reykjavíkur í gær og vann Val 27-8, eftir að staðan hafi verið 18-3 í hálfleik. Eftir 10 mínútna leik var staðan 11-1 Selfyssingum í hag, þrátt fyrir að bannað hafi verið eftir fimm mínútna leik að fara frá vítateigslínunni í vörn. Yfirburðir Selfyssinga voru miklir og léku byrjunarliðsmenn lítið í leiknum. Menn eins og Ásmundur Ingjaldsson Andri Karlsson og Kamil Jónsson létu ljós sitt skína. Hafa ber þó í huga að í lið Valsmanna vantaði leikmenn og því gefa kannski úrslitin ekki alveg rétta mynd af muninum á milli liðanna.
