Leiknum sem átti að spila á fimmtudaginn kemur hefur verið frestað að beiðni Víkings fram yfir áramót. Þar með er Selfoss 90 komið í jólafrí og spila strákarnir ekki aftur fyrr en 13. og 14. janúar en þá fara þeir norður og spila tvo leiki í sömu ferð, við Þór og KA. Liðið er í 3. sæti eftir 5 leiki, hafa unnið 4 og tapað 1, fyrir FH 31-34.
Athygli vekur að strákarnir hafa ekki enn spilað einn einasta útileik í deildarkeppninni það sem af er tímabilinu. Þetta þýðir að þeir spila 13 leiki eftir áramót og þar af 9 útileiki. Athyglisvert mótafyrirkomulag.
