Um helgina fóru strákarnir í handboltaakademíunni á Selfossi í skemmtilega óvissuferð. Eins og sannri óvissuferð sæmir vissu strákarnir ekkert hvað til stóð þegar lagt var af stað. Þeir héldu að það ætti að vera vídeóæfing í rútunni. Farið var frá Selfossi niður á Eyrarbakka og til baka og síðan Gaulverjabæjarhringurinn sem endaði svo á jólahlaðborði á Rauða húsinu.
Með í för var sagnamaðurinn Þór Vigfússon sem sagði skemmtisögur alla leiðina. Tókst honum að kitla hláturtaugarnar ærlega og höfðu strákarnir gaman af. Rútuferðin var í boði Guðmundar Tyrfingssonar og jólahlaðborðið í boði Rauða hússins og vill handknattleiksdeild Umf. Selfoss færa þeim bestu þakkir fyrir.
Myndin hér að neðan er tekin á Rauða húsinu og er ekki annað að sjá en að menn séu nokkuð sáttir við að vera þar.

