Helgi Héðinsson 18 ára Selfosshnokki var á dögunum valinn í 16 manna hóp U-19 ára landsliðs karla sem fer á Hela Cup í Þýskalandi milli jóla og nýárs. Fyrsta æfingin hjá liðinu verður á þriðjudaginn kl. 08:00 í Víkinni.
Ísland er í riðli með Þýskalandi, Sviss og Póllandi. Leikið er í tveimur riðlum á þessu móti og í hinum riðlinum eru Rúmenia, Sviss, Frakkland og úrvalslið Saarlands.
Íslenska liðið leikur þann 27. des gegn Þjóðverjum kl 18.00. 28. des leikur liðið svo tvo leiki, fyrst gegn Pólverjum kl 13.40 og svo gegn Sviss kl. 16.00. Daginn eftir eða þann 29. des leika Íslendingar einn leik, við það lið sem endaði í sama sæti og Ísland í sínum riðli
Við Selfyssingar erum mjög stoltir að eiga landsliðsmann í þessu liði þó við hefðum vonast eftir að eiga fleiri. Það er okkar trú að Helgi eigi eftir að standa sig með sóma líkt og hann gerði er hann var valinn til að leika á sama móti í fyrra. Á því móti beið íslenska liðið því miður afhroð.
