Tveir strákar úr Umf. Selfoss þeir Ragnar Jóhannsson og Einar Héðinsson æfa nú af fullum krafti með U 17 ára landsliðið Íslands í handknattleik. Guðmundur Árni Ólafsson var einnig valinn í hópinn en átti ekki heimagengt þar sem hann er staddur á Kúbu í góðu yfirlæti í frí með fjölskyldunni. Á myndinni er landliðshópurinn samankomin eftir eina æfinguna.
