Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

27.12.2006 | Handbolti

Tap gegn Þjóðverjum

Í dag lék u-88 lið Íslands gegn Þjóðverjum á Hela Cup í Þýskalandi. Með þessu liði leika tveir Selfyssingar, Helgi Héðinsson og Hörður Másson.

Leikurinn var jafn og spennandi og einkenndist af mikilli baráttu eins og lokatölur gefa til kynna, 22-18 Þjóðverjum í vil eftir að Ísland hafði haft yfir í leikhléi 11-9. Þjóðverjar leika fasta 6-0 vörn en Íslendingar 3-2-1 vörn.

Hörður Másson var í byrjunarliðinu í hægri skyttu en tókst ekki að finna leiðina að marki Þjóðverja og var fljótlega skipt út af. Helgi Héðinsson lék helming leiksins fyrir framan í vörn Íslands og svo í vinstra horni og hægri skyttu í sókn, en þess ber að geta að Helgi er miðjumaður.

Við vonum að Íslendingum og ekki síst okkar strákum gangi betur á morgun en þá leika þeir gegn Svisslendingum og Pólverjum.

Áfram Ísland!

sjóli


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta