Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.2.2007 | Handbolti

Meistaraflokkur Selfoss vann FH í 1. deildinni

Leikurinn byrjaði með látum og bæði lið náðu sér vel á strik í vörninni. Selfoss náði smám saman að síga fram úr þegar leið á fyrri hálfleikinn og var staðan í hálfleik 16 - 13 fyrir Selfoss. Í byrjun seinni hálfleiks náði Selfossliðið frábærum kafla í vörninni sem gerði það að verkum að þeir sigu jafnt og þétt fram úr FH-ingum. Þegar 15 mín. voru til leiksloka var munurinn orðinn 5-6 mörk. Þá fékk Heiðar sína 3. brottvísun og Ólafur Guðmundsson sem er á yngra ári í 3. flokki inná og fór hreinlega hamförum. Hann skoraði 8 mörk á þessum stutta kafla og hélt FH inní leiknum. Það dugði þó ekki til og Selfossliðið náði að landa góðum sigri 29 - 26.

Í FH liðinu var Valur Arnarson mjög góður og svo auðvitað áðurnefndur Ólafur. Þá náði FH inná milli að spila fína vörn.

Í liði Selfoss átti Sjóli stórleik. Hann skoraði 12 mörk úr 14 skotum og hreinlega hélt Selfoss á floti síðustu 20 mín. leiksins. Þá átti Kúldi mjög góða innkomu á miðjuna þegar Michal hafði fengið 3. brottvísun sína í leiknum. Helgi spilaði frábærlega í fyrri hálfleik en var orðinn frekar þreyttur í þeim seinni. Vörnin var mjög góð með þá Arnar og Gústa í miðjunni. Birkir varði vel og var með 40% markvörslu þar til að hann meiddist lítillega eftir samstuð. Þá kom Halldór inná og varði 7 skot á síðasta korterinu.

Mikalonis er enn meiddur og spilaði ekki. Þá meiddist Atli Kristins í leiknum um miðjan fyrri hálfleik og spilaði ekki meir. Bæði Arnar og Hörður Bjarna meiddust í leiknum en hörkuðu það af sér en óvíst er hvort þeir spili næsta leik. Miðað við allt þá verður að segjast að þetta hafi verið frábær sigur hjá strákunum sem hafa náð að búa til flotta gryfju hér á heimavelli og einungis toppliðin Afturelding og ÍBV hafa náð stigum á Selfossi í vetur. Liðið lofar góðu og framtíðin er björt.

Næsti leikur er á útivelli á móti hinu ósigraða liði Aftureldingar sem hefur þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta ári. Við vonum að Atli, Addi og Hörður nái að vera með í þeim leik. Gangi ykkur vel strákar.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta