Þau sem bestum árangri náðu á árinu og hlutu hæstu styrki voru: Örn Davíðsson og Ágústa Tryggvadóttir frjálsíþróttamenn, Viðar Örn Kjartansson knattspyrnumaður, Helgi Héðinsson, Birkir Fannar Bragason og Hörður Másson handknattleiksmenn, Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, Katrín Ösp Jónasdóttir og Ágústa Gísladóttir fimleikastúlkur ásamt Ingólfi Snorrasyni karatemanni.
Aðrir sem hlutu styrki voru: Sigurður Eyberg Guðlausson og Stefán Ragnar Guðlaugsson knattspyrnumenn, Katrín Ír Friðgeirsdóttir knattspyrnukona, Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson, Einar Héðinsson og Örn Davíðsson handknattleiksmenn og Linda Ósk Þorvaldsdóttir fimleikakona.
Þá hlutu einnig styrk Dröfn Hilmarsdóttir, Fjóla Signý Hannesdóttir og Andrea Ýr Bragadóttir frjálsíþróttakonur, Guðmundur Þórarinsson knattspyrnumaður, Elise Kristinsdóttir og Dagný Hróbjartsdóttir knattspyrnukonur og Sigþór Þórsson og Andri Már Sveinsson handknattleiksmenn.
Íþróttamaður og íþróttakona Umf. Selfoss verða útnefnd á aðalfundi félagsins í apríl og hljóta þau einnig styrk úr sjóðnum.
