Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.2.2007 | Handbolti

4. flokkur A tapaði fyrir FH 30-25

Í gær lék A-liðið við FH í Kaplakrika og var sá leikur erfiður okkar mönnum. Tap varð staðreynd en Selfyssingar áttu svo sannarlega möguleika á að ná einhverju út úr þessum leik. FH-ingar höfðu alltaf frumkvæðið og leiddu ávallt með 3-6 mörkum. Í leikhléi stóð 15-11 fyrir FH. Í seinni hálfleik hélst munurinn áfram 3-6 mörk en Selfyssingar fengu fjölmörg tækifæri á að minnka muninn enn frekar en gerðu sig oft seka um hræðileg mistök eins og tvígrip, skref, feilsendingar og fleira og fleira.

FH hafði sigur 30-25, það er merkilegt að fá sig 30 mörk þrátt fyrir að spila fína vörn. En FH-ingar fengu að spila 2-3 mínútna sóknir án þess að hendur dómaranna færu á loft til merkis um leikleysu. Ekki stóð á því að lyfta höndunum upp eftir 40 sekúndna sóknir Selfyssinga. Þá fengu FH-ingar vítakast við minnstu brot okkar manna. Enginn leikmanna FH fékk tvær mínútur í leiknum, en Selfyssingar fimm og svona væri hægt að telja lengi. Sem sagt skrautleg dómsgæsla.

Við kennum þó ekki dómurum um því ef tæknimistökum hefði verið haldið í lágmarki er aldrei að vita hvað hefði gerst í leiknum.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta