Leikurinn byrjaði mjög illa og Valur komst í 11-0 og þá voru 11 mín. búnar af leiknum. Þá fór þjálfari Vals að skipta aðeins inná og þá komst jafnvægi á leikinn. Okkar strákar héldu í við Val fram að hálfleik og staðan þá var 22-12 fyrir Val. Í seinni hálfleik komu lykilmenn Vals aftur inná og komust þeir mest í 15 marka forskot. Þá fór þjálfari Vals loksins aftur að hleypa varamönnunum inná og við það kom aftur jafnvægi á leikinn og Selfoss náði að minnka muninn í 12 mörk fyrir leikslok þrátt fyrir að hafa fjölmörg tækifæri til þess að minnka muninn niður fyrir 10 mörk í lokin.
Það voru margir góðir sprettir hjá okkar mönnum. Sjóli skoraði 13 mörk úr 16 skotum. Einar Héðins átti mjög góðan leik á línunni og skoraði 4 mörk úr 5 skotum og fiskaði 3 víti. Þá áttu Eyþór og Halli góða spretti í leiknum og gerðu marga góða hluti. Ástgeir varði vel en hann var með 13 skot varin (1 víti) en fékk mikið af hraðaupphlaupsmörkum á sig. Hann var með 35% markvörslu þær 45 mín. sem hann spilaði. Ekki slæmt fyrir strák sem er búinn að æfa mark í aðeins 1 ár og það á móti langbesta 2. flokki landsins.
Þessi leikur var fín reynsla fyrir Selfoss því að þarna fengu þeir tækifæri til að spila 3-4 ár upp fyrir sig en liðið var nánast eingöngu borið uppí af strákum úr 3. flokki í þessum leik. Þar sem Valur er ekki með 3. flokk þá voru þeir að spila við stráka sem eru allt að 4 árum eldri. Þeir áttu ekkert í elstu strákana hjá Val enda talsverður munur á styrk, leikreynslu og snerpu. Hins vegar áttu þeir í fullt erindi í strákana sem eru 1-2 árum eldri en þeir og höfðu í raun betur þann kafla sem þeir fengu að spila hjá Val.
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
