Helgina 23.-25. febrúar verður haldið á Selfossi eitt fjölmennasta handboltamót sem haldið hefur verið hér á landi. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 6. flokki drengja. Á Selfoss munu streyma strákar á aldrinum 10-11 ára. Alls eru 55 lið skráð til leiks og búast má við milli 550-600 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í báðum íþróttahúsunum á Selfossi þ.e. Vallaskóla og Iðu. Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og ekki linnt látum fyrr en að loknum 125 leikjum á seinni part sunnudags. Um 100 starfsmenn koma að mótinu sem krefst mikllar skipulagningar. Sú vinna verður léttari næsta ár þegar litla íþróttahúsið við Sunnulækjarskóla verður risið.
Þetta er í fjórða skiptið sem þetta mót er haldið og hefur það aldrei verið svona umfangsmikið. Það að geta haldið svona mót ber unglingastarfi handknattleiksdeildar Umf. Selfoss gott vitni og væri ekki mögulegt nema fyrir óeigingjart sjálfboðaliðastarf foreldra.
Selfoss sendir 4 lið til leiks. Í keppni A-liða er Selfoss í fyrsta sæti og getur með góðri frammistöðu tryggt sér deildarmeistaratitil. C-liðið er einnig í toppbaráttu en þeir eru efstir í keppni til Íslandsmeistara.
Nánari upplýsingar um leikjaniðurrðun og þátttökulið má finna á heimasíðu HSÍ:
http://www.hsi.is/default.asp?cat_id=269
