Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

19.2.2007 | Handbolti

4. flokkur með tvo sigurleiki um helgina

4. flokkur lék 2 leiki um helgina og unnust þeir báðir. A liðið vann Val í Reykjavík og heima á Selfossi sigraði B liðið HK.

Í gær lék A liðið við Val og sigraði örugglega 28-16 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 12-6. Geysilega öflug vörn og góð markvarsla lagði grunn að þessum sigri. A liðið er mjög jafnt og eru yfirleitt allir leikmenn sem leggja mikið af mörkum í hverjum leik. Sverrir markmaður stóð sig vel og varði 20 skot, Aron lék vel í sókninni sem og þeir Þór og Árni Steinn. Stefán Ragnar stjórnaði spilinu af mikilli festu.

A liðið á góðan möguleika að ná þriðja eða fjórða sætinu í deildinni sem myndi tryggja þeim heimaleik í úrslitakeppninni. Það er mun betri árangur en margir þorðu að vona. Tímabilinu er þó hvergi nærri lokið og er mikið verk framundan.

B liðið lék svo síðar í gær hér heima gegn HK. Lið þeirra eri skipað leikmönnum á yngra ári sem eru mjög efnilegir margir hverjir og vel spilandi. Mikil leikgleði einkennir þeirra leik og dugnaður. Okkar drengir áttu í miklum erfiðleikum með þá en unnu þó nokkuð örugglega 25-18 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 14-9.

B liðið lék illa  í leiknum og menn eins og Orri Davíðsson, Trausti Karlsson og Guðbjörn "Böddi" Tryggvason eiga að geta mun betur. Helgi Hlynsson var aftur á móti mjög góður í markinu og varði 24 skot.

B liðið er efst í deildinni og með sama áframhaldi gætu þeir getað gert gott úr þessu tímabili.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta