Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.2.2007 | Handbolti

Stórt tap fyrir FH í 3. flokki

Án þessara tveggja lykilmanna reyndist okkar strakunum erfitt að spila sinn bolta og allt fór úr skorðum í sóknarleik liðsins. Sóknarleikurinn varð vandræðalegur og mikið af mistökum gerði það af verkum að FH skoraði 16 mörk af 22 í fyrri hálfleik úr hraðupphlaupum. Staðan í hálfleik var 22-8 fyrir FH. Í síðari hálfleik virtust strákarnir vera búnir að jafna sig á áfallinu og spiluðu mun betur. Bjarki kom þá í hægri skyttuna og Matti í vinstra hornið en auðvitað eru þetta ekki þeirra stöður á vellinum. Þessi uppstilling gekk þó bísna vel ásamt því að mistökunum fækkaði þannig að FH fékk bara 4 hraðupphlaupsmörk í seinni hálfleik. Leikurinn tapaðist svo 41-23.

Bjarki og Einar voru báðir frábærir í þessum leik og þá spilaði Halli betur í seinni hálfleik eftir afleitan fyrri hálfleik. Örn reyndi eins og hann gat en átti erfitt með að komast nógu nálægt til að skjóta. Aðrir voru því miður ekki með enda ekki hægt að ætlast til þess að leikmenn sem enn eru í 4. flokki eigi í fullu tré við besta lið landsins í þessum aldursflokki.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta