Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

26.2.2007 | Handbolti

Glæsilegt Landsbankamót

Um síðustu helgi fór fram fjölmennasta íþróttamót á Suðurlandi á þessu ári þegar Landsbankamótið í handbolta fór fram á Selfossi. 560 keppendur mættu til leiks og leiknir voru 125 leikir á þremur dögum. Mótið tóks með afburðum vel, allar tímasetningar stóðust og fjölmargir sjálfboðaliðar unnu frábært starf á mótinu. Ætla má að yfir 1000 manns hafi heimsótt Selfoss um þessa helgi í tengslum við mótið. Þetta er í fjórða skiptið sem þetta mót er haldið og er það búið að festa sig í sessi í íþróttalífinu.
 
A-lið Selfoss tryggði sér deildarmeistaratitilinn í 6. flokki drengja, liðið vann Þrótt, Fylki og Hauka en töpuðu reyndar fyrir FH og Fjölni en góð frammistaða strákana fyrr í vetur gerði það að verkum að deildarmeistaratitillinn var þeirra.
 
B-liðið lék í 3.deild og sigruðu þeir alla sína leiki og fegnu gull-verðlaun í lokin.  C1-liðið vann alla sína leiki sannfærandi og þar með sigur í 1.deild en þar sem þeir urðu í 4.sæti fyrr í vetur urðu þeir að sætta sig við 2.sætið samanlagt. Lið C2 vann líka alla sína leiki en þeir léku í 3.deild.
 
Þannig að samanlagt unnu Selfyssingar 15 leiki og töpuðu tveimur sannarlega glæsileg frammistaða.
6.fl. alið

Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta