Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

27.2.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá 4. flokki

4. fllokkur B2 gerði góða ferð í gærkvöld á Seltjarnarnes er þeir sóttu lið Gróttu heim. Fyrr í vetur unnu Selfyssingar Gróttu með einu marki á ævintýralegan hátt og var því ljóst að um hörkuleik yrði að ræða.

Selfoss hafði sigur í erfiðum leik 19-17. Í hálfleik stóð 12-10 fyrir Selfoss. Okkar drengir voru alltaf með frumkvæðið í leiknum og leiddu mest 18-12 er 15 mínútur voru eftir. Það er merkilegt að skora aðeins eitt mark síðasta korter leiks en vinna samt. Mjög mikilvæg tvö stig í hús fyrir Selfoss og vonandi ná þeir að halda sínu striki út tímabilið.

Einar Sverrisson lék góða vörn í leiknum og stjórnaði leik liðsins vel. Magnús Már línumaður skoraði nokkur góð mörk í leiknum og lét oft og tíðum finna fyrir sér í vörninni.

Í þessu liði eru margir skemmtilegir baráttumenn á borð við Ingva TRyggvason og Ketil Hauksson og skilar það liðinu langt. Anton Traustason lék ekki með í leiknum vegna veikinda þrátt fyrir að þjálfari liðsins hafi bannað veikindi.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta