Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.3.2007 | Handbolti

Halldór Haraldsson í viðtali

Hvar lékst þú handbolta áður en þú komst á Selfoss ?  Ég er búinn að spila með Fram síðan ég var um 6 ára gamall. Síðan er maður nú búinn að mæta á nokkrar æfingar hjá KA fyrir norðan um jól og páska. Enda ættaður að norða og með pínu Gult hjarta.

Hvað varð til þess að þú komst í handbolta-akademíuna?  Ég frétti af þessu í gegnum strákana sem eru hérna í Selfossi og langaði að komast í umhverfi þar sem að öllum langaði að ná langt og þar sem allir höfðu sömu markmið og ég. En ekki að vera í liði þar sem aðeins sumir voru að æfa til að verða eitthvað. Því ef að allir eru að æfa til að bæta sig þá verða æfingarnar mikið markvissari og skila meiri árangri.

Hvernig hefur þér líkað á Selfossi ? Ótrúlega vel. Ég var eiginlega búinn að lofa sjálfum mér því að flytja ekki í neitt minna bæjarfélag en Akureyri því allt annað væri of lítið fyrir mig en annað hefur komið á daginn. Bærinn iðar allur af lífi og stækkar ört. Rólegt umhverfi og maður er ekki langt frá Reykjavík.

Er eitthvað sem hefur komið þér sérstaklega á óvart ? Hvað allir taka manni ótrúlega vel. Það virðist engu máli skipta hvort þú ert 15 ára eða 21 það eru allir félagar hér. Svoleiðis myndi ekki sjást í Reykjavík þar sem að jafnaldrar hanga nánast eingöngu saman. Ég er búinn að eignast fullt af vinum hérna sem að ég hefði ekki viljað sleppa að kynnast.

Hvað ætlar þú að vera lengi á Selfossi ? Ég ætla að taka eitt tímabil í einu og endurskoða svo fyrir hvert tímabil, það er erfitt að vera frá fjölskyldunni í svona langan tíma, en ef það er það sem þarf til að ná árangri þá er það þess virði. Ég gæti allveg séð mig vera hérna út menntaskólaárin og jafnvel eitthvað lengur, kannski þangað til að maður færi í atvinnumennskuna.

Hvað möguleika eiga Selfyssingar í framtíðinni í handboltanum ? Liðið er gríðarlega ungt og Sebastian er búinn að gera frábæra hluti með það. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því. Þótt að meistaraflokkur sé ekki að vinna efstudeildarliðin núna þá verður maður að horfa til framtíðar og framtíðin er eitthvað mikið meira en björt.

Hvernig er skólinn ? Skólinn er mjög góður, þetta er skóli sem bíður upp á áfangakerfi og það hentar mér mjög vel. Ég var kannski mest hræddur um að einangrast í skólanum en það er alls ekki þannig, við höldum mikið saman handboltinn í öllum frímínútum og svo eins og ég kom inn á áðan að ef að þú ert nógu opin og setur upp pínu bros þá vilja allir kynnast þér. Kennararnir eru mjög fínir en það leynast að sjálfsögðu einhverjir svartir sauðir inná milli eins og allstaðar. Það kom mér líka á óvart hversu ótrúlega margir nemendur eru í skólanum. Þetta er náttúrulega nánast allt Suðurland.

Hvernig er svona hefðbundinn dagur hjá þér ? Ætli maður vakni ekki svona um 6 leytið og fái sér hollan og bragðgóðan morgunverð. Síðan hefst æfing niðrí húsi á slaginu 7 og er um að gera að mæta ekki of seint, annars verður Basti allveg brjálaður. Æfingin er til 8 og svo hefst skólinn kl 8:20. Þar er maður að sópa í sig einhverjum fróðleik sem er víst mis góður til 16:00. Oft er lyftingaræfing um hádegi og er það þá bara inná stundatöflu, tekið sem einn tími. Eftir skólann kemur maður heim upp á vist, sinnir félagslífinu, þó aðalega konunni (hún tekur rosalegan tíma). Svo er kvöldæfing hálfníu. Eftir það tekur lítið annað við en að sinna pínu heimanámi og falla svo bara í svefn um 23-24 leytið.

Hver saknar þú helst frá Reykjavík ? Úff það er svo mikið. Fjölskyldan náttúrulega nr. 1, 2 og 3. Maður hittir þau núna kannski á tveggja vikna fresti. Allir vinirnir, sakna þess að hanga með þeim enda góður félagsskapur þar á ferð. Gamla hverfið, manni þótti vænt um það.

Hvert stefnir þú ?  Ég stefni klárlega á atvinnumennsku, annað tek ég ekki í mál. Það er enginn stefna það er bara áfangastaður, þar mun maður koma við. Ég er búinn að ákveða það. Landsliðið, þótt maður sé ekki í því núna þá fær maður tækifæri og mun nýta það, verða Íslandsmeistari (vonandi með Selfossi), vinna HM og EM með Landsliðinu, vinna Meistaradeildina og spila handbolta þangað til ég dey.

Við þökkum þessum geðþekka leikstjórnanda fyrir spjallið.

halli


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta