4. flokkur kvenna hefur á skömmum tíma spilað 4 leiki og er skemmst frá því að segja að þeir hafa allir unnist á sannfærandi hátt. Fyrsti leikurinn í þessari hrinu var gegn FH og vannst hann einkar sannfærandi 30-12. Góð vörn og markvarsla ásamt stórleik Hildar sem var atkvæðamest bæði í vörn og sókn og skoraði 14 mörk lagði grunninn að þessum þægilega sigri.
Næsti leikur var svo gegn Fjölni og vannst hann 21-8 þar sem varnarleikur okkar stúlka var hreint út sagt stórkostlegur. Staðan í hálfleik var 11-2 og höfðu þá aðeins 3 skot ratað að Selfossmarkinu, Áslaug varið 1 og 2 farið inn. Annað markið var meira að segja algert klaufamark enda erfitt fyrir Áslaugu að halda einbeitingu þegar hún fær nánast aldrei að snerta boltann. Sóknarleikurinn var ágætur og liðið að skora nokkuð úr hröðum upphlaupum sem hafa verið að gefa meira og meira í hverjum leik. Varnarmegin voru allar að standa sig en Sara, Hildur, Thelma og Dagný voru þó að skila sérstaklega góðum varnarleik. Sóknin var ágæt en hefði getað verið betri og enn ýmislegt sem þarf að laga þar en Hildur var þó eins og oft áður atkvæðamest í markaskorun.
Svo var komið að Val, leikur sem átti að vera í Laugardalshöllinni en vegna mistaka Valsstúlkna var hann færður á Selfoss. Enn spiluðu stelpurnar vel og unnu mjög sannfærandi sigur 27-13. Eins og í flestum þeirra leikjum var það góð 5-1 vörn með Dagnýju fyrir framan sem var heldur betur að standa fyrir sínu og Áslaug var traust fyrir aftan. Sóknarlega áttu þær ekki í neinum vandræðum þrátt fyrir að Hildur væri tekin mjög framarlega og jafnvel úr umferð. Thelma, Dagný og Sara spiluðu mjög vel og stigu upp þegar á þurfti að halda þegar Hildur var klippt út
Liðið lék svo við KR síðasta sunnudag og vannst þar sigur 19-15 í ansi skrautlegum leik. Það verður bara að viðurkennast að liðið spilaði ekki sinn besta leik þarna. Dagný og Hildur hittu á frekast slakan dag, sérstaklega í vörn og munar um minna. Sóknin var stirð og mikið af tæknifeilum og fjölmörg dauðafæri sem fóru í súginn. Liðið sýndi þó mikinn styrk að klára þennan leik þrátt fyrir allt það mótlæti sem þær máttu þola á þessum erfiða útivelli. Það sem gerði gæfumuninn var markvarsla Áslaugar sem varði mjög vel og meðal annars 4 víti af 7 sem og frábær innkoma Söru en hún skoraði 4 mjög góð mörk á mikilvægum augnablikum í seinni hálfleik.
Stelpurnar hafa nú unnið 6 af síðustu 7 leikjum sínum og eru á mikilli siglingu, framfarir hafa verið gríðar miklar enda hafa þær flestar verið að æfa mjög vel og samviskusamlega. Það sést best á því að fyrr í vetur gerði liðið aðeins jafntefli við Fjölni og FH og tapaði fyrir Val, en sigraði þessi lið svo eftir áramót með miklum mun eins og sagt er frá að ofan. Fólk er hvatt til að koma og fylgjast með næsta leik þeirra sem er á heimavelli 17 mars klukkan 16 gegn toppliði Gróttu. Stelpurnar eru í 3 sæti eins og stendur með 26 mörk í plús, 6 stigum á eftir Gróttu og 4 á eftir ÍR.
