Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.3.2007 | Handbolti

Góð ferð á Egilsstaði

B2 lið 4. flokks gerði góða ferð á Egilsstaði um helgina og vann Hattarmenn í tveimur leikjum. Reyndar fór annar leikurinn fram á Seyðisfirði og er það fyrsti handboltaleikurinn sem fer þar fram á Íslandsmóti í handbolta. Seyðfirðingar eiga flott hús sem gaman var að spila í. Strákunum þótti virkilega gaman að fara á staði líkt og Seyðisfjörð þar sem hrikaleg fjöll umlykja bæinn og ekið er eftir alvöru fjallvegi en ekki hól eins og sumir kjósa að kalla Hellisheiði.

Fyrri leikurinn var spilaður á laugardaginn á Seyðisfirði og vannst hann 28-18 eftir að hálfleikstölur hafi verið 12-10 Selfyssingu í hag. Örn og Bjarni drógu vagninn sóknarlega en Helgi markmaður var besti maður liðsins með 25 skot varinn.

Seinni leikurinn fór fram á Egilsstöðum í gær og unnu okkar drengir hann aftur með 10 mörkum, núna 23-13, í hálfleik stóðu leikar 15-8. Sóknin var erfið hjá Selfyssingum í leiknum en markvarslan bjargaði liðinu algjörlega, Helgi varði tæplega 30 skot og þar af 5 vítaköst. Góður árangur það.

Ferðin gekk í alla staði mjög vel og stóðu strákarnir sig vel í að hafa eitthvað fyrir stafni og höguðu sér vel. Þeir gengu vel um gistirými sín og skiluðu þeim aftur í góðu standi. Hattarmönnum kunnum við bestu þakkir fyrir mikla gestrisni og greiðvikni.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta