Í gær lék einnig A lið 4. flokks gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabær. Óhætt er að segja að Selfyssingar hafi tekið Stjörnumenn í kennslustund en okkar menn unnu stórt eða 38-17 eftir að staðan hafi verið 19-10 í hálfleik.
Góð markvarsla Sverris, góður varnarleikur og hraðaupphlaup lögðu grunninn að svona stórum sigri. Árni Steinn skoraði 11 mörk og mörg hver úr hraðaupphlaupum, Andri Hallsson lék loksins aftur eftir langa fjarveru og skoraði 7 mörk og þá skoruðu Þór og Andri Már 5 mörk hvor. Matthías lék vel í leiknum sem og þeir Aron Valur (sem virðist spila allar stöður) og Sigurþór í vörninni. Birgir Harðarson lék einnig vel en hann hefur bætt sig mikið á þessu tímabili.
