Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.3.2007 | Handbolti

Góður sigur hjá B2

Í gærkvöld lék B2 lið 4. flokks gegn Stjörnumönnum sem fram að þessum leik voru taplausir í deildinni. Okkar menn voru staðráðnir í að sýna gestunum úr Garðabæ að á Selfoss koma menn ekki til að sækja tvö auðveld stig.

Strákarnir sigruðu 23-17 í leiknum eftir að staðan hafi verið 14-6 í leikhléi. Selfyssingar léku mjög góða vörn i leiknum og keyrðu hraðaupphlaupin miskunnarlaust við hvert tækifæri. Okkar drengir náðu mest 10 marka forskoti í fyrri hálfleik og hleyptu Stjörnumönnum aldrei nálægt sér eftir það.

Magnús Már Magnússon lék mjög vel í vörninni í dag og stjórnaði málum þar af mikilli festu. Einar Sverrisson var góður í vörninni og stjórnaði hraðaupphlaupunum vel sem og sóknarleik liðsins. Þá átti Anton Freyr Traustason góðan leik sem og Örn Þrastar. Ingvi Tryggvason og Ketill Hauksson berjast alltaf vel í leikjunum og skila sínu og vel það. Einnig var Bjarni Bent mjög góður í vörn. Þá varð Helgi Hlynsson eina ferðina enn yfir 20 skot. Ekki má gleyma nýju mönnunum, þeim Sveini Brynjarssyni, Jökli Baldurssyni, Eysteini Valssyni og Erlingi Loftssyni en þeir tveir síðastnefndu eru báðir markmenn sem lofa góðu.

Með þessum sigri stigu Selfyssingar mikilvægt skref í þá átt að ná 2. sæti deidarinnar sem kann að gefa sæti í úrslitakeppninni.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta