Atli Kristinsson er enn meiddur eftir leikinn á Egilsstöðum og þá er Halldór markmaður einnig meiddur. Bæði Helgi og Mikalonis voru að spila eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Helgi eftir 4 vikur og Mikalonis eftir 4 mánuði. Helgi náði aldrei takti við leikinn og fann sig engan veginn. Mikalonis var góður í tæpt korter en þá var hann orðinn þreyttur enda ekkert æft í tæpa 4 mánuði. Hann skoraði þó 3 mörk í röð um leið og hann kom inná þannig að byssan er enn á sínum stað. Nú verður bara að vinna í því að koma honum í leikæfingu og úthald aftur. Aðrir útispilarar eru ungir að árum og enn í 3. flokki. Eins og áður hefur verið sagt þá var vörn og markvarsla í góðu lagi. Birkir varði 18/1 skot í leiknum. Það segir sitt um sóknina að línumennirnir tveir voru markahæstir, Michal með 6 og Gústi með 5.
Næsti leikur er á föstudag á heimavelli, LOKSINS, en það eru rúmar 6 vikur síðan við spiluðum heimaleik. MJÖG eðlilegt. Þá kemur Grótta í heimsókn en þeir eru með gott lið sem hefur verið í toppbaráttunni i allan vetur. Á sunnudaginn þá kemur Höttur í heimsókn þannig að heimaleikirnir verða 2 á 3 dögum. Þess ber að geta að síðan munu líða rúmar 4 vikur í næsta og jafnframt síðasta heimaleik okkar. Já svona er það nú bara.
