Öll lið 4. flokks léku um helgina, A liðið tvo leiki og B liðin bæði sitt hvorn leikinn. Allir þessir fjórir leikir unnust og má því með sanni segja að þetta hafi verið góð helgi.
Á laugardaginn komu ÍR-ingar í heimsókn með A og B lið sín. Fyrst lék B1 okkar gegn B liði ÍR-inga og vannst sá leikur 30-8 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 19-3. Vörnin var sterk í leiknum sem og markvarslan góð. Orri var mjög öflugur og lék vel og einnig Trausti Eiríksson. Allir leikmenn skiluðu sínu og vel það. Næsti leikur hjá þessu liði er á morgun heima gegn Haukum. B1 fer svo norður til Akureyrar um næstu helgi og leikur þar fjóra leiki gegn Þór og KA.
Strax á eftir B liðs leiknum léku A lið Selfoss og ÍR. Það var hörkuleikur þar sem úrslitin réðust á síðustu tíu mínútum leiksins er Selfyssingar sigldu fram úr. ÍR stjórnaði leiknum í fyrri hálfleik og stóðu leikar að honum loknum 12-7 ÍR í vil. Markvarsla Selfoss var léleg sem og nýting liðsins úr dauðafærum. Í seinni hálfleik tók Sverrir markmaður sig til og varði mjög vel jafnt og þétt allan hálfleikinn og vörnin fór að virka eins og lagt var upp með. Lokatölur urðu 22-19.
Selfossliðið var mjög jafnt í leiknum, sem er ekkert nýtt svo sem, það er einmitt helsti kostur liðsins. Andri Már lék á miðjunni í fjarveru Matthíasar en hann fékk að líta rauða spjaldið frá réttsýnum og sanngjörnum dómurum leiksins gegn Gróttu helgina áður. Andri Már stóð sig frábærlega í leiknum og á hrós skilið fyrir að taka af skarið er á þurfti. Eins og áður sagði er liðið jafnt og vinnur það sína leiki á samheldni og liðsanda. Eins virkaði Selfoss liðið í mun betra formi en lið ÍR, sem voru hreinlega sprungnir í seinni hálfleik.
Á sunnudag lék svo B2 gegn Hetti á Selfossi og vannst sá leikur 20-16 eftir ákaflega lélegan fyrri hálfleik. Höttur hafði yfir í hálfleik 8-5. Okkar menn í Selfossi tóku sig saman í seinni hálfleik og fóru að raða inn mörkum úr hraðaupphlaupum og eftir innleysingar úr hægra horni. Anton skoraði 9 mörk og stóð sig vel í leiknum. Erlingur og Eysteinn vörðu í heildina nokkuð vel og var vörnin nokkuð góð. Bjarni Bent skoraði nokkur góð mörk og Ingvi nýtti vítaköstin vel.
Síðar á sunnudeginum lék svo A liðið aftur og nú gegn Haukum að Ásvöllum. Leikmenn Selfoss virkuðu þreyttir í leiknum og náðu ekki upp þeim hraða sem það er vant. Eftir að hafa yfir 8-5 í hálfleik vannst sigur 20-16. Sverrir varði 24 skot í leiknum, sem gerir 60%, ekki slæmt það. Árni Steinn skoraði 6 mjög góð mörk í leiknum en fyrst og fremst var það frábær markvarsla og ekki síðri vörn sem skóp þennan sigur.
A liðið leikur næst gegn Fram á þriðjudaginn í næstu viku og svo daginn eftir gegn Haukum heima.
B2 á tvo leiki hér heima um næstu helgi gegn ÍBV. Báða á laugardeginum, kl.15 og kl. 17.
