B lið fjórða flokks vann Hauka í gær á Selfossi. Leikurinn var hraður og nokkuð vel spilaður af hálfu okkar manna.
Selfyssingar gáfu tóninn strax í upphafi og ljóst var að þeir ætluðu sér að hefna ófaranna frá því í leik liðanna í síðustu viku. Eftir átta mínútna leik var staðan orðin 6-1 og skein ákveðni og leikgleði úr andliti hvers manns. Í hálfleik hafði Selfoss yfir 16-9.
Haukar náðu að minnka muninn í 17-12 en nær komust þeir ekki og sigu Selfosshnokkar hægt og bítandi fram úr. Lokatölur urðu 33-22.
Lið Selfoss lék sterka vörn sem var mjög hreyfanleg og braut um 50 fríköst í leiknum, sem er gríðarlega mikið. Markvarslan var einnig góð hjá Helga og unnust því mörg tækifæri til hraðaupphlaupa sem okkar menn nýttu sér vel. Hraðinn í leiknum var mikill og virtust Haukar ráða illa við hann.
Orri Davíðsson setti 9 mörk, Örn Þrastar 8 en aðrir minna. Allir stóðu sig frábærlega og vörnin var nokkuð góð í leiknum með þá Orra og Trausta Eiríksson sem bestu menn. Trausti skoraði einnig nokkur góð mörk í leiknum. Þá ber að geta góðs leiks Daníels "JónsRagnarssonar" en hann hefur ekkert fundið sig eftir áramót þangað til í gærkvöld.
Mikilvægur sigur í toppbaráttunni því ljós og næsta verkefni þessa liðs er að fara norður til Akureyrar um næstu helgi þar sem strákarnir ætla sér stóra hluti.
