Í lok æfingarinnar fengu strákarnir að spurja Viggó spjörunum úr og komu margar skemmtilegar spurningar fram sem Viggó svaraði af sinni alkunnu snilld. Mörg svaranna voru mjög fróðleg og vöktu kátínu margra í hópnum. Heimasíðan vonast til þess að taka viðtal við hann fljótlega en ef ekki þá bara þegar við fáum hann næst í heimsókn.
Þetta er önnur heimsókn gestaþjálfara í vetur en fyrir áramót kom Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í heimsókn og vonumst við til þess að hann komi líka aftur enda fannst honum gaman að koma og kíkja á starfið hjá okkur.
Stefnan er að fá fleiri gestaþjálfara í heimsókn og það verður gaman að sjá hver kemur næst ?
Í lokin eru hér svo nokkrar myndir frá heimsókninni.
