Þrátt fyrir að leikur Selfoss-Selfoss sé eftir, þá er nú ljóst að 90 endar í 2. sæti og 89 í 7 sæti. Það þýðir að 90 mætir annað hvort Fram eða Stjörnunni á heimavelli í 8-liða úrslitum. 89 þarf að fara í umspil við Fram, Stjörnuna eða FH2 á hlutlausum velli um það hvort liðið mætir FH á útivelli í 8-liða úrslitum.
Það er vonandi að strákarnir í 89 nái sér á strik í umspilinu og komist í 8-liða úrslit því þótt að þeir mæti FH þá yrði það engu að síður mikil áfangi að vera með 2 lið í 3. flokki í 8-liða úrslitum sem þýðir að Selfoss ætti 2 af 8 bestu liðum landsins í þessum flokki.
Að lokum þá minnum við á Selfoss-Selfoss2 þann 12. apríl kl. 19.30 í fullu íþróttahúsi og í brjálaðri stemmningu. Leikurinn verður auglýstur betur á heimsíðunni síðar.
