Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

3.4.2007 | Handbolti

Vel heppnuð Akureyrarferð

B-lið fjórða flokks skellti sér norður til Akureyrar um síðustu helgi og lék þar fjóra leiki. Tvo gegn KA og tvo gegn Þór. Selfoss og KA voru í mikilli baráttu um deildarmeistaratitilinn fyrir helgina og því ljóst að um hörkuleiki yrði að ræða.

Fyrir leikina hafi Selfoss tapað þremur stigum minna en KA í deildinni. Með tveimur sigrum hefði því KA geta tryggt sér sigur í deildinni. Fyrsti leikurinn fór fram á föstudagskvöldi og hafi KA betur 26-25 í hörkuleik þar sem sigurinn gat farið á hvorn veginn sem var. Í hálfleik var staðan 16-16 en KA var alltaf á undan að skora. Selfoss komst tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik en missti það niður og lenti þremur mörkum undir. Með baráttu og góðum sóknarleik jafnaði liðið en KA skoraði sigurmarkið eftir mikil varnarmistök. KA nægði því að vinna okkar drengi aftur til að vinna deildina.

Á laugardeginum lék Selfoss fyrst gegn Þór og vann 26-16. Selfyssingar leiddu allan tímann örugglega í leiknum. Síðar sama dag léku þeir svo aftur við KA. Vörn og markvarslan í þeim leik var mjög góð. Trausti lék vel fyrir framan og Orri Davíðsson hefur sennilega aldrei leikið betur. Þá var markvarsla Helga mjög góð, sérstaklega á mikilvægum augnablikum. Selfyssingar höfðu alltaf frumkvæðið í leiknum og náðu mest fjögurra marka forskoti er fjórar mínútur voru til leiksloka. Í hálfleik stóð 7-8 Selfossi í vil en lokatölur urðu 17-19 fyrir Selfoss. Glæsilegur sigur en helgin var fjarri því búin.

Á sunnudagsmorgni lék liðið svo sinn fjórða leik um helgina. Lemstraðir leikmenn Selfoss og þjakaðir af þreytu unnu Þór 28-21 eftir að hafa átt í erfiðleikum með Þórsara í leiknum. Þórsarar náðu að minnka muninn minnst í tvö mörk en nær komust þeir ekki.

Um helgina varði Helgi mjög vel alla leikina. Örn Þrastarson átti góða helgi sem og Trausti Eiriksson sem hefur bætt sig mjög á tímibilinu. Guðbjörn og Daniel léku vel á köflum en hurfu þess á milli. Kamil Jónsson gerði einni marga góða hluti. Orri Davíðsson átti aftur á móti mjög góða leiki alla fjóra. Mikill kraftur, sterkur varnarleikur og þrumuskot einkenndu hann alla helgina.

Selfoss B lið er því deildarmeistari 2007 í 1. deild. Til gamans má geta þess að B2 verður í 2. sæti í 2. deild sem þýðir að það lið fer í umspil. Vinni B2 umspilið mæta þeir deildarmeisturunum í úrslitakeppninni. Það yrði frábært fyrir strákana og góð auglýsing fyrir félagið.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta