Í gærdag lék 4. flokkur A lið gegn Fram í Safamýri. Framarar eru efstir í deildinni og erfiðir heim að sækja.
Selfyssingar hófu leikinn virkilega illa og var eins og þeir þyrðu ekki að vinna Framara, sem komust í 6-1. Leikurinn jafnaðist þó er líða fór á hann og náðu okkar menn að minnka muninn í eitt mark. Aldrei tókst þeim þó að jafna þrátt fyrir mörg góð tækifæri.
Í lékhléi stóðu leikar 15-13 Fram í vil. Sá munur hélst nokkurn veginn í síðari hálfleik en Selfyssingar fengu nokkur góð tækifæri á að jafna leikinn. Það tókst ekki og lauk leiknum með sigri Fram 31-29. Leiðinleg og döpur niðurstaða því Selfyssingar hefðu unnið þennan leik með trú, baráttu og vilja. Þess ber einnig að geta að Selfoss lék nær allan seinni hálfleikinn einum færri. Leikmenn Selfoss fengu 8 brottvísanir í leiknum en Fram enga og það þykir sérstakt í meira lagi.
Árni Steinn Steinþórsson átti virkilega góðan leik og skoraði 11 mörk úr 11 skotum í leiknum og kom ekkert markanna eftir vítakast. Þór Davíðsson og Aron Valur Leifsson áttu góð spretti en meira býr Andra Má Sveinssyni þó hann hafi átt góða spretti í leiknum. Sverrir varði vel á köflum en fékk á sig fremur döpur mörk inn á milli. Varnarleikur liðsins var slakur en sá hluti leiksins hefur hingað til verið styrleiki liðsins.
í kvöld leikur þetta sama lið aftur og nú gegn Haukum hér á Selfossi. Með því að ná í a.m.k. eitt stig tryggja strákarnir sig í 3. sæti deildarinnar sem verður að teljast góður árangur.
Leikurinn hefst kl. 19.30 og hvetur heimasíðan alla til að kíkja á hann og berja leikmenn framtíðarinnar augum.
