Í liði 90 voru Gummi, Raggi og Ástgeir bestir en aðrir spiluðu einnig vel.
Markaskor:
Raggi 13
Gummi 13
Bjarki 8
Einar 8
Andri Már 2
Halli 1 (13 stoðsendingar)
Matti 1
Ástgeir 20/1 skot varin
Í liði 89 voru Sjóli og Sæli bestir og Binni skilaði sínu. Í liðinu voru einir 5 leikmenn úr 4 flokki sem stóðu sig einnig vel, sérstaklega Orri, Árni Steinn og Andri Hrafn.
Markaskor:
Hörður (Sjóli) 14 (8 stoðsendingar)
Ársæll 6
Sveinbjörn 4
Andri Hrafn 3
Binni 2 (4 fiskuð víti)
Árni Steinn 1
Ágúst 12 skot varin
Sverrir 3 skot varin
Munurinn lá fyrst og fremst í vörninni en 89 sá aldrei til sólar í vörninni í seinni hálfleik. Mótlætið fór talsvert í taugarnar á þeim og gáfust sumir þeirra upp um miðjan seinni hálfleikinn. Það var greinilegt að þeir söknuðu Eyþórs og Kúlda og þá sérstaklega varnarlega. 90 liðið spilaði hins vegar mjög góðan leik þar sem frábær markvarsla Ástgeirs gaf þeim mikið sjálfstraust og mörg hraðupphlaup. Sóknarleikur 89 liðsins var borinn uppi af einstaklingsframtaki frá Sjóla og Sæla í seinni hálfleik en Sveinbjörn sem spilaði góðan fyrri hálfleik hvarf algjörlega í þeim seinni.
Þá er deildarkeppni 3 flokks lokið og framundan eru úrslitaleikir um það að komast alla leið í 4 liða úrslit helgina 21-22 apríl.
