Selfoss´90 vann Stjörnuna í 8-liða úrslitum íslandsmótsins í gærkvöldi, lokatölur urðu 26-23 eftir að staðan í hálfleik 13-14 Stjörnunni í vil. Fyrirfram var búist við öruggum sigri Selfoss´90 en liðið endaði í 2.sæti í 1.deildar meðan Stjarnan sigraði 2.deild.
Selfossliðið virkaði þungt og illa einbeitt í þessum leik og voru undir meiri hlutann af leiknum en tóku sig taki og unnu öruggan sigur og var það fyrst og fremst að þakka góðri markvörslu Ástgeirs Sigmarssonar seinni hluta leiksins og Guðmundur Árni skoraði mikilvæg mörk í lokin. Um 120 áhorfendur studdu vel við liðið og fín stemming hefur verið á leikjum liðsins í vetur.
Liðið er þar með komið í undanúrslitin sem verða á Laugardaginn og þar mæta þeir annað hvort Haukum eða KA og þá þarf liðið að leika mun betur ef það ætlar sér Íslandsmeistaratitilinn.
