Selfoss´90 tapaði fyrir Haukum í undanúrslitum íslandsmótsins 25-28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10-12 Haukum í vil. Selfossliðið náði sér aldrei almennilega á strik í þessum leik, þeir áttu í erfiðleikum með hávaxna og öflugavörn Haukamanna og fyrir aftan hana stóð unglingalandsliðs markmaðurinn Aron Eðvaldsson sem átti stórleik og varði hvað eftir annað skot Selfyssinga í dauðafærum.
Það var fyrst og fremst lélegur kafli í byrjun seinni hálfleiks þar sem Haukar skoruðu fimm mörk gegn engu sem réð úrslitum í þessu leik. Það verður því hlutskipti Selfoss að leik við ÍR um 3.sætið í dag en Haukar mæta FH í úrslitum.
Ástger Sigmarsson var besti maður liðsins í þessum leik, Guðmundur, Ragnar og Halldór börðust vel.
Haukar tefldu fram ólöglegu liði í þessum leik en fimm leikmenn sem léku með Haukum2 tóku þátt í leiknum. Það hefði hjálpað Selfoss mikið að geta haft alla bestu menn Selfoss´89 með í þessum leik en slík er ólöglegt. Eftir nokkra reikistefnu var ákveðið að kæra ekki en ákvörðun Haukamanna að tefla fram ólöglegu liði er félaginu og þjálfara þeirra Óskari Ármannsyni ekki til framdráttar.
Selfoss´90 - Haukar 25-28 (10-12)
FH - ÍR 28-21 (13-13)
