Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

24.4.2007 | Handbolti

4. flokkur í úrslitakeppni

í kvöld leikur A lið fjórða flokks gegn Haukum í Vallaskóla kl 20.30. Þessi leikur er í 8 liða úrslitum og vinnist sigur í kvöld hefur A liðið unnið sér rétt til að leika um næstu helgi til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

Við hvetjum alla sem áhuga hafa á handbolta að mæta og hvetja þetta lið áfram. það væri frábært að eiga lið á meðal fjögurra bestu á landinu í keppni A liða.

B2 leika svo á morgun gegn ÍR um réttinn til að mæta hinu B liði okkar Selfyssinga. Á fimmtudaginn kl 21 fer sá leikur fram í Vallaskóla, Selfoss B1 og sigurvegarnir úr Selfoss B2 og ÍR. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign leikur svo til úrslita um næstu helgi í keppni B liða.

Það er sem sagt mikið fjör og líf í handboltamálum á Selfossi þessa dagana.

Til gamans má geta þess að um næstu helgi fer 6. flokkur til Eyja og er það síðasta mót þeirra á tímabilinu. C lið 6. flokks getur orðið Íslandsmeistari með hægstæðum úrslitum.

4.ka-allir


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta