Yngstu drengirnir í 4. fl unnu í gær ÍR-inga í leik um að komast í 8 liða úrslitin. Með þessum sigri unnu þeir sér inn rétt til að mæta hinu B liði Selfoss og fer sá leikur fram í kvöld á Selfossi.
Leikurinn í gærkvöldi fór fram á hlutlausum velli, sem var íþróttahúsið í Þorlákshöfn. Ekki datt okkur Selfyssingum í hug hlutlausari völlur en sá staður.
Selfyssingar byrjuðu vel í leiknum í gær og komust í 4-0 en svo fór að halla undan fæti. ÍR-ingar gerðu fjögur síðustu mörk fyrri hálfleiks og var staðan þá 13-13. Í seinni hálfleik lék lið Selfoss ákaflega illa fyrstu 15 mínúturnar og hafði ÍR yfir 21-17 á þeim tímapunkti. Þá skyndilega hættu leikmenn Selfoss öllu væli og tuði og tóku að einbeita sér að því að spila handbolta. Vörnin small í gang og Sveinn Brynjarsson í markinu tók að verja nokkur skot og við það fékk Selfoss nokkur hraðaupphlaup sem þeir nýttu vel. Sigur hafðist 25-23 og var það að þakka frábærum endasprett.
Ingvi Tryggvason var markahæstur með níu mörk en varnarlega lék hann hörmulega. Bjarni Bent átti góða spretti sem og Ketill Hauksson og Magnús Magnússon. Anton Traustason lék mjög vel og þá sérstaklega er líða tók á leikinn.
Í kvöld í Vallaskóla leikur mfl félagsins við UMFA kl 19.30 og strax að þeim leik loknum leika í 4.fl B liða Selfoss B og Selfoss B2. Sá leikur er liður í 8 liða úrslitum. Það er því 100% öruggt að hvernig sem fer í kvöld, þá á Selfoss lið í undanúrslitum um næstu helgi.
Við hvetjum alla til að koma að horfa á drengi framtíðarinnar etja kappi saman.
